Prófíll

  • Nafn: Birna Hermannsdóttir
  • Netfang: birna_87@hotmail.com
  • Staður: rvk

Auglýsing

Atburðir

Smá fréttir!!!

22. apríl 2008 klukkan 15:47
Ekki verið dugleg að blogga.....leiðist það hehe!! En er að reyna að læra fyrir próf, er ekki að nenna því alveg í augnablikinu.
En það sem er að frétta er bara allt gott, skólin að vera búin, komin með vinnu í sumar og erum að fara norður á morgun:)
Ef að ég næ þessu prófi sem að ég er að fara í á morgun sleppi ég við lokapróf svo að það er mikilvægt að ná því, þetta er vöðvafræðin sem er soldið mikið flókin latína, latína, latína!!!!
Og þá þarf ég bara að taka 4 lokapróf en er samt í 6 áföngum. Mjög gott það:)
En jáhh ég er komin með mjög góða vinnu í sumar sem ætti að opna ýmis tækifæri fyrir mig og er ég alveg rosalega sátt með þessa vinnu og vona ég að ég standi mig í henni þar sem að ég veit að það er búist við ansi miklu af mér þar....but i will survive hehe;) Hlakkar bara til:) Þið komið bara að versla í Everest og þá munið þið fá frábæra þjónustu!!!!
En já við skötuhjúin erum að fara norður á Akureyri á morgun, en ekki bara til þess að fá kók í bauk heldur líka til að fara á Andrésar Andarleikana. Þetta er sko aðalsportið hjá krökkum sem eru að æfa skíði og eru krakkarnir mínir sem ég er að þjálfa að rifna úr spenningi að fara að keppa, enda er þetta ekkert smá gaman. Man bara eftir því frá því að ég var lítil að þá snérist veturinn bara um það að æfa fyrir Andrés:) Ætlum að gista í bústaði hjá mömmu og pabba. Við ákváðum það þegar við fréttum að það væri heitapottur hehehe;)
Annars er allt að verða klárt í íbúðinni og erum við svona að dunda okkur við það sem er eftir, ekkert stórvægilegt sem að er eftir, smá að spasla, mála og græja filmu í baðherbergisgluggan og þá verður hægt að halda hið mikla innfluttningspartý sem margir bíða spenntir eftir heheh, búin að vera þónokkur eftirspurn um það;) Vorum jafnvel að spá í að halda Euorovision/Innfluttningspartý og slá því tvær flugur í einu höggi. Sem er alls ekkert svo vitlaust svo að þeir sem eiga börn fá pössun þann dag *hóst, aldís og stella hóst* hehe;)
Held að þetta sé komið gott í bili og ætla nú að fara að læra eitthvað svo að ég nái prófinu:)
Chao Birna!!!

Flutt inn:)

10. febrúar 2008 klukkan 14:04
Jæja við erum flutt inn í íbúðina:) Fluttum inn fyrir viku síðan og er þetta algjört æði, okkur líður ekkert smá vel hérna enda búin að hreiðra ágætlega um okkur:) Þetta er svona næstum því allt komið bara smá svona smáatriði eftir að gera....
Fórum á okkar fyrsta húsfund í vikunni og hittum alla nágranana....ágætis fólk alveg:)
Hvað er eiginlega málið með veðrið sjæse.....rok og rigning týpist Ísland hef ekkert farið á skíði síðan á miðvikudaginn út af roki, en það er svosem ágætt....voða gott að geta verið heima í kósi eitt og eitt kvöld:) Tala nú ekki um þegar við erum komin með okkar eigin heimili hehe:)
Skólinn gengur sinn vanagang en er mjög erfiður og er ég í frekar erfiðum fögum en maður reynir svona að klóra sig út úr þeim með bestu getu, sjáum svo til í vor hvernig útkoman verður;)
Algör snilld við erum með internetið hérna heima frítt þar sem að það er einhver sem að er ekki með læst net, sem er bara gott mál, fínt að geta lært heima og svona....
En segjum þetta gott í bili....
Þangað til næst...
Kv. Birna

Allt að gerast:)

18. janúar 2008 klukkan 10:02
Jæja nú er sko allt að gerast hjá okkur með íbúðina:)
Byrjuðum fyrir viku að rífa gjörsamlega ALLT út úr henni og brjóta niður veggi og svona skemmtilegheit....búin að vera vinsælust í blokkinni hehe;)
En erum núna búin að mála allt og erum að setja gólefni á íbúðina og ætlum að setja upp innréttingar og skápa vonandi í næstu viku...
Þetta er búið að ganga ekkert smá vel hjá okkur miklu betur en ég átti von á og erum við að stefna á að flytja inn um mánaðarmótin ef að allt gegnur svona vel áfram...
Var eimmitt að skoða dagatalið og 1 og 2 febrúar er á föstudegi og laugardegi svo að þeir dagar hljóma vel fyrir innfluttningspartýið svo að við getum nú gert nágranana endanlega geðveika haha....bara gaman að því:)
Annars hefur skólinn setið aðeins á hakanum þar sem að allur tími fer í íbúðina og að grjæja og gera fyrir hana....annars með voða fína töflu og er búin eiginlega alla daga klukkan eitt og tvö...lúxuslíf ha!!!
Vá hvað það er mikill snjór....i love it hehe Bláfjöll alveg á kafi!!! En hvað er málið með dúddana þarna uppí Bláfjöllum leið og það kemur snjór fara þeir að ýta honum úr brekkunni halló helv... hálvitar held að ég ætti bara að sækja um vinnu þarna og fara að frekjast aðeins þarna hehe!!! Gaurarnir bara í Bubbi byggir leik og að ralla á snjósleðunum og annað skiptir ekki máli eins og að troða brekkurnar.....frekar bitur þjálfari hér hehe:)
En ætla að segja þetta gott í bili og skella mér í tíma;)
Later Birna

Gleðilegt nýtt ár!!!!

01. janúar 2008 klukkan 16:27
Jæja gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir þau gömlu:)
Það er ekki alveg að ganga þetta blessaða blogg hérna en það er líka ágætt að blogga bara einu sinni í mánuði hehe!!!
Hugsið ykkur það er komið 2008 halló djö... er maður að vera gamall maður:S
En ætlaði bara rétt að senda smá kveðju er að fara að gera mig reddý fyrir matarboð:)
Þangað til næst...
Birna

Jæja:)

28. nóvember 2007 klukkan 10:55
Góðir hálsar þið getið andað léttar þar sem að ég er á lífi hehe! Ég kom heil heim frá Prag ótrúlegt en satt.....
Ég fór semsagt til Prag með Caruso genginu fyrir þónokkru síðan....allavega í nóvember og var þar gríðaleg stemming og ekkert smá gaman, þvílikt góður hópur sem að var þarna samankominn. Ég ætla að skella inn myndum frá ferðinni:)
Annars er þetta síðasta vikan í skólanum jeijj:) En svo fara prófin að taka við.....fer í mitt fyrsta próf 4. des. og er búin 11. des. og ætli þá verið ekki bara unnuð eins og maður eigi lífið að leysa til að meika smá monney þar sem að ég er frekar fátækur nemi.
En ég þarf að drífa mig í tíma aftur ég blogga næst eftir 3 mánuði hehe;)
Chao Birna

Hahaha snilld!

31. október 2007 klukkan 17:23
Stal þessu af síðunni hennar Rakelar algjör snilld:)
Ég er :

B: Magnaður kyssari ( halló vitiði ekki hver ég er!)
I: Elska að grilla ( ég sendi kallinn nú bara út að grilla)
R: Er með flottann rass ( en ekki hvað sá heitasti!)
N: Auðvelt að verða ástfanginn af ( ég þarf alveg að slá þá af mér hehe)
A: Heit ( alveg sjóðandi!)


Tékkið á.........

A: Heitur/Heit
Á: góð/ur í rúminu
B: Magnaður kyssari
C: ágætur kyssari
D: skemmtilegur deitari
Ð: er nörd á góðan hátt
E: getur lamið þig í klessu
É: með flott brjóst/sixpack
F: brjálað fólk elskar þig
G: elskar að brosa og hlæja
H: fáránlega heitur/heit
I: elskar að gilla
Í: er húmoristi
J: er mjög kósý
K: æðisgengin/nn
L: mjög góður kyssari
M: hefur fallegustu augun
N: auðvelt að verða ástfangin af
O: hefur einn fallegasta persónuleika sem til er
Ó: er kaldhæðin/nn
P: vinsæl/ll hjá allskonar fólki
Q: dýravinur
R: er með flottan rass
S: fær fólk til að hlægja
T: bros sem að bræðir mann
U: er mjög kynþokkafull/ur
Ú: er hnakki/hnakkamella
V : er ekki fordómafull/ur
Y: hefur fallegar hendur
Þ: er ástríðufull/ur
Æ: finnst aldur afstæður
Ö: er hræðilegur bílstjóri

Segjið mér svo hvað þið voruð hehe!

Er annars að læra undir próf er að fara í próf í vöðvafræði á morgun, eintóm hamingja yfir því......not hehe!

Heyri í ykkur!

Það er komin snjór:D

30. október 2007 klukkan 16:52
Jíhhaa það er komin snjór:D Ég er sko ekkert smá ágnægð með það maður, reyndar hef ég gert mér grein fyrir því að við búum á Íslandi og þetta á allt eftir að rigna í burtu eftir 2 daga, alveg hundfúlt.
Pælið í því að það er byrjað að framleiða snjó í Hlíðarfjalli svo að maður getur farið að spóka sig þar eftir 2-3 vikur ef að allt gegnur eftir bestu bókum. Ekki leiðinlegt það ha?;)
Mér er farið að hlakka ekkert smá til að þjálfa í vetur enda er ég með yndislegustu krakka í heimi og alveg hörkuþjálfari sem að ég verð að þjálfa með bara skemmtilegur vetur framundan.
Nú styttist óðum í Prag ferðina góðu sem að mér er farið að kvíða soldið fyrir út af skólanum ég á eftir að missi 4 daga úr honum og veðrur hell að ná því aftur upp svona rétt fyrir próf....námsefnið er orðið alveg hrikalega þungt, maður á sér ekkert líf nema að læralæralæra, frekar ömó en jólin er handan við hornið svo að það er bara jákvætt:D
Ekkert gegnur í íbúðarkaupum en við skoðum á hverjum degi og er ekkert sem að okkur lýst almennilega á. En þetta kemur allt:)
Jæja ég ætla að brunast í Borganes til sætasta Borgnesingsins;)
Chao!

Viltu trúlofast mér?

25. október 2007 klukkan 17:07
Það er nú ekki frásögufærandi að ég var að vinna í Kolaportinu síðustu helgi...alveg uppáhaldið mitt....hehe! Ég sat þarna og var svona við það að rotna og kemur þá gamall skarfur að kaupa lottó hjá mér svo horfir hann alveg hrikalega óþæginlega á mig og varpar svo stóru spurningunni upp: Viltu trúlofast mér. What HA heyrði ég rétt ég náttlega vildi ekki vera dónaleg og bara sjitt fokk hvað á ég að segja og við erum að tala um að manninum var fúlasta alvara stóð þarna og beið eftir svari. Ég bara ha ég umm nei ég á eiginlega bara kærasta. Hann stóð þarna og glápti ennþá og bara já þú ert bara svo rosalega falleg. Halló hvað átti ég að segja....gubbaði út úr mér takk-i. Þú labbar ekkert upp að næstu manneskju sem að þér finnst falleg og spyrð hana um að trúlofast þér haha. Sumt fólk er svo klikkað.
Annars það sem er nýjasta nýtt á nálinni er að við Dolli erum að huga að íbúðarkaupum, misstum af einni geggjaðri sem að okkur leist ekkert smá vel á. Vorum alltaf á leiðinn að hringja eftir henni og svo þegar við hringdum loksins var hún seld....ógeðslega svekkjandi en svona er þessi bransi maður verður bara að stökkva strax um leið og manni lýst á e-ð. Svo að það þýðir ekkert annað en að halda áfram að leita enda alveg nóg í boði:)
Það er alveg meira en nóg að gera í skólanum er búin að fara í 4 próf í vikunni og er þetta bara alveg að vera komið gott....langar bara að drífa lokaprófin af og komast í jólafrí....hafiði pælt í því hvað er geggjað stut tí jólin, þau verða komin áður en við vitum af.
Svo er það náttlega PRAG ferðin mikla sem allir eru að míga í sig af spenningi eftir, get sko ekki beðið eftir að komast, kvíð reyndar svolítið fyrir því að missi 4 daga úr skólanum, en hey þar var ég nú heppina að fæðst svona fluggáfuð að það skiptir ekki máli....eða ekki hehe;) Verð að vinna eins og mófó fyrir ferðina svo að það er eins gott að skólinn róist aðeins svo að ég fari nú ekki bara á skítaflot hehe "skítaflotskítaflot". En ætla að vera í fríi um helgina og svo byrjar ballið.
En ætla að skella mér í vinnuna!
Chao;D

Eistland:D

19. október 2007 klukkan 10:14
Jæja taka 2....loksins þegar ég ákvað að fara að blogga búin að skrifa þessa líka frábæru ferða sögu datt þetta bara allt út og það kom ekki neitt....pirrpirr;)
Svo að ég ætla að reyna að gera aðra....
Við skelltum okkur til Eistlands á miðvikudegi og vorum komin á áfangastað um kvöldið, þurftum svo að keyra í svona klukkutíma í húsið mömmu og pabba. Þegar við komum þangað fengum við grilluð rif og svo var farið í pottinn. Algjör snill sátum bara úti fram eftir kvöldi undir svoa gashitara sem að var búið að brasa lengi við að setja saman!
Fimmtudagur: Keyrðum niður í bæjinn sem að er rétt hjá húsinu og verksmðjunni m&p og skoðuðum okkur aðeins um og haldiði ekki að við höfum náð gamla settinu með okkur í keilu...brjálað stuð;) Fengum dýrindissteik um kvöldið og svo var spilað Scrable(kann ekki alveg að skrifa það) fram á nótt...fórum svo aðeins í pottinn svona áður en við skriðum uppí rúm.
Föstudagur: Ég byrjaði daginn á að fara í lagfæringu á nöglunum og gellan var ekkert smá klá handmálaði á svona munstur á neglurnar á mér og allt geggjað fott sko og það fyrir 1000 kall ekki dýrt það....þetta þýðir bara eitt að ég verð að fara til Eistlands einu sinni í mánuði til að fara í lagfæringu hehe;D Strákarnir fóru á undan mér og mömmu niður til Tallin og við komum svo um kvöldið og skelltum við okkur í að borða á e-n svínastað og fengu strákarnir stæðsta matasskammt sem að ég hef á ævi minni séð. Þeir fengu heilt svínalæri hvorki meira né minna það var örugglega svona 2 kg. eða e-ð og það var að sjálfsögðu farið í keppni um það hver gat torgað mestu!! Kíktum e-ð aðeins á næturlífið eða bara á einn bar sem að var ekkert smá hommalegur......það var allt hvítt þarna inni og hvít latexglansandi sæti bara hommalegt sko og þar fékk ég stæðsta White russian hvorki meira né minna en hálfur líter sjitt ég náði sko ekki að torga því maður ég meina heilt bjórglas af þessu var komin með sæmilegt ógeð eftir nokkra sopa.
Laugardagur: Kíktum aðeins í búðir og svo var bara tjill.
Sunnudagur: Byrjuðum daginn á að fara í saunu og heitann pott, röltum síðan um miðbæjinn ekkert smá fallegur....allt frá 12hundruð og súrkál;) Fórum svo bara kósí út að borða og svo bara heim á hótel að pakka.
Mánudagur: Tókum ferju frá Tallin til Finnlands og flugum svo heim.
Þetta var elveg frábær ferð í alla staði:D
Skellti inn nokkrum myndum!

Lítill prins kominn í heiminn:D

26. september 2007 klukkan 09:22
Stella vinkona og Viddi kærastinn hennar eignuðusdt lítinn prins núna á sunnudaginn var. Ég fór að skoða dúlluna í gær og VÁ hvað hann er sætur algjört krútt, það verður gaman að knúsa hann , svo bara að skila honum ef að það er e-ð verið að gráta hehe ;) Alltaf gott að gta skila til mömmu ef að allt gegnur ekki eins og það á að vera! En Stella og Viddi enn og aftur til hamingju :)
Ahh miðvikudagur sem að þýðir að það styttist óðum í helgina get sko ekki beðið eftir henni þar sem að við Dolli ætlum í sumarbústað....það verður sko klárlega legið í pottinum alla helgina og borðað yfir sig, ekki smurning;)
Brjálað að gera í skólanum en gengur samt alveg ágætlega svona betur én ég hélt að mér mundi ganga þar sem að ég er búin að vera í svo rosalega löngu fríi frá skóla.
M&P voru að bjóða mér og Dolla til Eistlands í október því ég fer í e-ð smá vetrarfrí og við ætlum að nýta það verðum í 5 daga og mér hlakkar ekkert smá til að komast aðeins út :)
Svo má náttlega ekki gleyma Prag fer þangað í nóvember með aðal Caruso genginu....haldiði nokkuð að það verði fengið sér mojito ha Rakel og Amma heheh þetta verður geggjað, en ég held að það verið bara gefin listaverk úr klósettrúllum í jólagjöf þar sem að það flæðir nú ekkert úr buddunni hjá manni ;)
En ætla að reyna að læra aðeins er nebblega á leiðinni í próf!
Adios!

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...